.... á meðan allir hinir hjúkkunemarnir eru á próflokadjammi.
Ég semsagt kláraði prófin á miðvikudaginn og brunaði heim það sama kvöld. Náði nú ekki að kveðja einn né neinn því allt í einu fékk ég bara nóg og vildi leggja í hann. Ólöf gamla æskuvinkona heiðraði mig með nærveru sinni og ég held bara að þessi leið hafi aldrei verið jafn fljót að líða. Held að við höfum ekki þagnað alla leiðina heim, enda langt síðan við höfum getað spjallað almennilega

Á fimmtudeginum fór ég svo í extreme make over, asnaðist til að gleyma að taka fyrir/eftir mynd en ég luma kannski á einhverri fyrir breytingu. En ég semsagt fékk augabrúnir og það var bara hellings munur út af fyrir sig en svo fór ég líka í klippingu og litun og ég ákvað bara að vera svoltið wilde og gera e-ð nýtt. Er með svona dökkrautt og dökkbrúnt saman og útkoman er bara helvíti flott að mínu mati

Svo er klippingin líka nokkuð nett en mig grunar að þetta sé svona blási og sléttu klipping og þeir sem þekkja mig vel vita að mér finnst algjör óþarfi að eyða tíma í svoleiðis vesen

Svo byrjaði ég að vinna bara í morgunn (tæknilega séð í gær

) og tek líka næturvakt aðra nótt og ákvað að challenga mig soltið og taka morgunnvakt líka. Þannig að ég verð að vinna frá 23-13, það verður bara fínt enda er ég fátækur námsmaður sem fær ekki full námslán þar sem ég trassaði eitt fag hrottalega. Það hlaut að koma að því að þetta myndi ekki "reddast"

En ég þarf virkilega á því að halda að kunna þetta skemmtilega námsefni þannig að þetta er kannski bara fyrir bestu.
Fór líka í mælingu um daginn sem kom mér nú bara á óvart. Var búin að léttast um 2,5 kíló og nokkrir cm týndust af héðan og þaðan, áfram af brjóstunum en alveg heilir 3 mm af lærunum

það var nú aðallega bara í gríni en þau haldast bara alveg eins, enda sagði ég bara að þetta væru greinilega bara vöðvar og þeir fara nú ekkert að rýrna á þessu prógrami

hehe
En ég hlakka bara til að byrja á nýja prógraminu, var bara með heimtufrekju og auðvitað fékk ég það sem ég vildi

Stóri G þorði bara ekki að segja nei við mig

Samt frekar neyðarlegt að þurfa að viðurkenna að það séu ekki fóta og axlarpressur í ræktinni hérna þar sem þetta eru nú grundvallartæki finnst mér, en maður reddar sér bara

Ég hélt að ég væri nú búin með bullkvótan eftir þessi próf en svo er greinilega ekki

haha
Jæja ætla að halda áfram að lesa, loksins e-ð annað en skólabækur þó að maður verði að líta í þær í sumar